Header Paragraph
Bragðlaukaþjálfun með fyrirlestur á ráðstefnu við Harvard háskóla
Við erum alveg hreint brjálæðislega stoltar af því að hafa fengið boð um að halda fyrirlestur á ráðstefnu lýðheilsu- og næringarfræðideildar Harvard háskóla.
Við áttum sem sé að vera í San Francisco í apríl síðastliðnum, bæði með erindi og einnig í pallborðsumræðum en því var auðvitað frestað! Ráðstefnan ber heitið Teaching Kitchen Research Conference og verður haldin dagana 11-12 nóvember í netheimum.
Skráning á ráðstefnuna er ókeypis og hvetjum við sem flesta til að mæta og hlusta á fróðleg erindi!