Header Paragraph

Námskeiðin í fullum gangi

Image
Rótargrænmeti, spergilkál og paprikka

Jæja, nú erum við hálfnuð með tvö námskeið sem eru keyrð samhliða (einn hópur á þriðjudögum og annar á fimmtudögum). Krakkarnir eru að standa sig ótrúlega vel, eru forvitin, jákvæð og aldeilis tilbúin í bragðlaukaævintýri.

Foreldrar hafa einnig verið góður stuðningur í orðum og verkum en þeir læra nefnilega ýmislegt nýtt um sig sjálf og börnin í þessum æfingum okkar. Í þessari viku verður þemað leynihráefni sem kemur fyrir í mismunandi útgáfum í þremur uppskriftum!