Titill
Bragðlaukaþjálfun hlýtur verðlaun fyrir veggspjald á erlendri ráðstefnu
Bragðlaukaþjálfun hlaut nýverið verðlaun fyrir eitt af sex bestu veggspjöldum ráðstefnu sem haldin var nýverið í Ghent, Belgíu. Ráðstefnan stóð yfir í þrjá daga og fyrirlesarar hvaðanæva að sem fluttu erindi um heilsu í víðu samhengi (m.a. hreyfingu, offitu, næringu og matarvenjur og líðan). Yfir 60 veggspjöld voru sýnd á staðnum og verðlaunin því afar ánægjuleg. Höfundar veggspjaldsins voru Sigrún Þorsteinsdóttir, Ragnar Bjarnason, Helga G. Elíasdóttir og Anna Sigríður Ólafsdóttir. Veggspjaldið var unnið úr grein um líkamssamsetningarmælingar barna og foreldra fyrir og eftir þátttöku í rannsókninni okkar. Enn og aftur viljum nota tækifærið og þakka þátttakendum fyrir framlag sitt því án þeirra hefðum við jú ekki allar þessar fínu niðurstöður og viðurkenningar!